mánudagur, október 09, 2006

Vááááá hvað það var gaman í Madríd!!!! Þetta er bara meiriháttar borg og ég hefði sko alveg verið til í að vera viku lengur að minnsta kosti!!! Strax á fimmtudagskvöldinu fórum við á brjálað djamm á Paccha!!!! Það er einn sá rosalegasti skemmtistaður sem ég hef komið á!!!! Ég var ekki lengi að hitta Ashton Kutcher þar og átti góðar stundir með honum, spjallaði heilmikið við hann!!!! Hann bara varð að fá mynd af sér með aðalgellunni á staðnum enda var hann bara aðalgaurinn á svæðinu, hihihi!!!!! Yummi!!!!














Á leiðinni heim lentum við í frekar furðulegri lífsreynslu!!! Það sat bara gaur á nærbuxunum einum fata í lobbýinu á hótelinu okkar og vissi hvorki hvert hann væri að fara né hvaðan hann væri að koma!!!! Haldið þið að það hafi ekki síðan bara komið í ljós að gaurinn væri íslendingur!!!! Það hlaut nú bara e-ð að vera, múhahahah!!!!














Daginn eftir var síðan bara drifið sig á fætur eldsnemma að mínu mati og farið að versla!!! Eftir að hafa eytt hálfum deginum í það þá nennti ég ekki meiru og fór í bjór og chill með hinum sem nenntu ekki að versla!!! Fórum bara og sötruðum öl í hitanum á aftökutorginu, röltum um borgina og skoðuðum furðulegar búðir!!!! Rákumst einmitt á ansi skemmtilega hjálma í einni svoleiðis sem lét mann bara líta út eins og Dumb & Dumber!!!!














Um kvöldið var síðan árshátíðin haldin með pompi og prakt á Cafe De La Opera þar sem við vorum afgreidd af óperusyngjandi þjónum og fengum dýrindis máltíð!!! Það voru nú flestir orðnir heldur skrautlegir eftir matinn og þá skelltum við okkur unga fólkið á klúbba bæjarins og enduðum aftur a Paccha klúbbnum rosalega sem klikkaði ekki!!!!! Ég og Rut entumst lengst á tjúttinu og enduðum í partý á svölunum í herberginu hennar drekkandi hvítvín á stút vinkandi öllum sem löbbuðu framhjá!!!!














Laugardeginum var eytt í að versla meira, drekka bjór, skoða höllina og sitt af hverju, aðeins að gera ferðina menningarlegri!!! Um kvöldið fórum við siðan út að borða á æðislegum Argentískum veitingastað þar sem að ég fékk þá allra bestu steik sem ég hef nokkurn tíman smakkað!!!! Rauðvínið þar var líka æðislegt og ég er ekki frá því að ég sé bara farin að geta drukkið flest rauðvín í dag!!!














Eftir matinn spókuðum við okkur svo um a einu torgi i bænum áður en við héldum á frábæran klúbb sem var staðsettur rétt hjá hótelinu!!!! Kvöldið endaði síðan aftur í svalapartý hjá stelpunum langt fram á morgun!!!















Á sunnudeginum fórum við svo á stærsta útimarkað í Evrópu þar sem hægt var að kaupa flest allt!!!! Ég tapaði mér i hvolpabúð og keypti bæli og þess háttar fyrir voffa litla, hehe!!! Hitinn var rosalegur, rúmlega 30 gráður þannig að maður var alveg að leka niður í mannfjöldanum!!! Vorum nærri rændar af einhverjum helvítis sígaunakellum en við vorum ekki lengi að segja þeim til syndanna og lemja í þær, heheh!!! Þannig að overall þá var þetta ein sú allra besta ferð sem ég hef farið í EVER!!! Verslaði fullt, djammaði fullt, hló endalaust, skemmti mér konunglega og ég get ekki beðið eftir að fara þangað aftur!!!

MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni