þriðjudagur, október 31, 2006

Vegna tæknilegra örðugleika er ég ansi hrædd um að það sé smá bið í myndirnar!!! Fékk eina rosalegustu gjöf EVER frá pabba og Önnu um daginn, glænýja MacBookPro, ég er í skýjunum!!! Ekkert smá flott fyrirfram jólagjöf!!! Þannig að núna er ég bara á fullu að setja inn forrit og kynna mér hvernig hún virkar, þetta er engin smá græja, fylgir meira að segja með fjarstýring og læti!!! Sökum þess er ég ansi hrædd um að ég nái ekki að setja inn myndirnar strax!!! Ég reyni að setja þær bara inn á gömlu tölvunni ef þetta gengur ekki en ég er bara svo helvíti þrjósk svo þetta skal ganga!!! Þangað til þá verðið þið bara að vera þolinmóðar og ef þið eigið einhverjar myndir af ógleymanlegum atriðum frá griffludeginum þá megið þið endilega senda mér þær!!!

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni