fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Almáttugur hvað ég sakna systrabarna minna alveg ofboðslega mikið!!! Er ekki að fíla að vera svona langt í burtu frá þeim, en það er smá sárabót að geta talað við þau reglulega á netinu í gegnum vefmyndavél!!! Svo gaman að sjá hvað þau stækka fljótt!!! Grímur Egill voða duglegur að læra að tala sænskuna og Ragnhildur voða dugleg bara að tala yfir höfuð!!!














Já hún er orðin ansi stór þessi snúlla og komin með svaka mikið hár!!! Oh hvað það væri nú gott að geta knúsað þau aðeins núna!!! Vildi að ég kæmist í heimsókn um jólin, en ég verð bara að bíða þangað til í vor og reyna að kíkja í heimsókn til þeirra þá!!!














Annars er bara að koma helgi aftur og það verður lærdómstörn þessa helgi eins og síðustu!!! Gott að vera bara heima að slaka á og vera dugleg í bókalestrinum!!! Prófin nálgast óðfluga og ég býst við því að taka því bara rólega þangað til fyrir utan föstudaginn í næstu viku, en þá er ég með plön að kíkja út!!! Þannig að ef að einhver er game í spilakvöld næstu helgar þá er ég meira en til, híhí!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni