þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Blah!!! Eintóm próf og leiðindi!!! Algjörlega leiðinlegasti og dauðasti tími ársins!!! En brátt kemur nýtt ár og margir spennandi atburðir framundan!!! Var að svara játandi boði í brúðkaup sem verður haldið í lok júní í Viladrau, litlum bæ rétt fyrir utan Barcelona!!! Jonesy og Andrea eru að fara að gifta sig svo að það verða allir London vinirnir saman komnir í Barcelona til að fagna með þeim!!! Þetta á eftir að vera æðislegt, alveg eins og brúðkaup Chris og Gigi í Róm!!!














Svo ætla ég að heimsækja systu í Sverige og Boggu og Snædísi í Köben!!! Um leið og ég klára námið ætla ég síðan að gerast farfugl og yfirgefa skerið!!! Býst fastlega við því að Köben verði fyrir valinu enda vinir og fjölskylda í grennd!!! En það eru óteljandi möguleikar og hver veit hvað gerist!!! Eina sem ég veit er að ég bíð nýársins spennt og vona að það verði jafn æðislegt og þetta ár er búið að vera!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni