miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Jæja þá komið að griffludags highlightunum!!!

Við byrjuðum á því að hittast klukkan eitt heima hjá Sollu og þemað í ár var Cowgirls!!! Stúlkurnar sýndu mikinn metnað og voru ótrúlega flottar cowgirls og reyndar nokkrir cowboys líka!!! Heima hjá Sollu var síðan boðið upp á ljúffengan brunch!!!














Stelpurnar fengu allar mismunandi litaða tóbaksklúta sem skipti þeim niður í lið og eftir að hafa gætt okkur á dýrindis súpu og nýbökuðum bollum sem var rennt niður með afbrags bjór var kominn tími til að byrja fjörið!!! Stúlkurnar voru sendar í ratleik út um allan bæ og til þess að skera úr því hvaða lið byrjaði fyrst voru þær látnar grýta niður dósir með steinum sem var nú það eitt fyndnasta atriðið sem ég hef séð!!! Það varð allt gjörsamlega ker azy og þegar þær voru komnar með vísbendingarnar reykspóluðu þær nánast í burtu!!!














Ratleikurinn leiddi þær síðan að lokum í keiluhöllina og var þvílíkur galsi í stelpunum þegar þær komu þangað eftir að hafa húkkað sér fjöldamörg för hingað og þangað um bæinn!!! Sömu liðum var haldið í keilunni og við tók svaka keilukeppni og bjórþamb!!!














Um 6 leytið kom síðan rúta að sækja okkur til að fara með okkur á næsta áfangastað!!! Haldið var smávegis út fyrir bæinn, nánar tiltekið í hestaleiguna Laxnes!!! Eftir að búið var að kveikja í grillinu voru allar skvísurnar leiddar beint í hlöðuna í smá kennslu í línudansi sem gjörsamlega sló í gegn!!!














Eftir púl og puð og ansi mikil hlátrasköll hlöðunni fengum við síðan frábæran grillaðan svínahnakka að borða ásamt ýmislegu góðu meðlæti!!! Íris stóð sig eins og hetja á grillinu og maturinn var hreint út sagt frábær!!! Strax eftir mat var nýja nefndin útnefnd og síðan fór síðan fram verðlaunaafhending fyrir siguvegara ratleiksins, keilunnar og af sjálfsögðu var flottasta cowgirl grifflan verðlaunuð!!!














Aðeins síðar um kvöldið mættu síðan tveir frekar töff leynigestir sem sáu um að halda uppi fjörinu með því að spila og syngja nokkur vel valin country lög með góðum undirtektum frá kúrekastelpunum!!! Svo var dansað, tjúttað, rokið upp á borð og ýmislegt annað óbirtingarhæft brallað þarna upp frá!!!!















Eftir frábært kvöld í Laxnesi kom síðan rútan að sækja okkur og keyrði okkur beinustu leið á Óliver þar sem allur skarinn var á gestalista!!! Dyraverðirnir reyndu nú e-ð að sannfæra okkur um að höfuðföt væru bönnuð þar inni en við létum sko ekki segjast og settum hattana strax aftur upp um leið og inn var komið!!! Það var rokið beinustu leið á dansgólfið og nokkur góð línudansspor tekin!!! Nokkrir kúrekabófar komu í ljós á dansgólfinu og snaran fór á loft, já það var sko allt að verða crazy!!!














Eftir að hafa eytt dágóðum tíma á dansgólfinu var síðan kíkt á Kaffibarinn og svo haldið heim á leið um 3 leytið enda þreyttir kúrekar á ferð!!!

Takk fyrir frábæran dag stúlkur, get ekki beðið eftir Grifflu jólaglögginu!!!!

MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni