þriðjudagur, nóvember 21, 2006

Loksins hef ég smá tíma til að setja inn nokkrar myndir frá djamminu um helgina!!! Fór á jólahlaðborð með vinnunni á föstudaginn á Kaffi Reykjavík og það var rosa gaman!!! Byrjuðum í fordrykk heima hjá Stínu og mættum svo á Kaffi Reykjavík klukkan 8!!! Þar var fullt af víni og góðum mat í boði og við í rosa stuði!!! Hittum þrusu skemmtilega dani og það var ansi skemmtilegt tungumálið sem var fundið upp á staðnum!!! Við vorum ekki lengi að troða okkur inn á ísbarinn þarna og taka nokkrar myndir þar inni en ég hefði nú ekki geta verið þar inni að drekka, það var svo ógeðslega kalt þar!!! Eftir matinn fórum við upp á Óliver til að halda stuðinu áfram en eftir samansull af rauðvíni, hvítvíni, bjór og pela af Tópas var nú bara ákveðið að halda heim á leið um hálf tvö enda maður orðinn frekar ölvaður og allt of mikill troðningur þarna inni, tíhíhí!!!
















Á laugardagskvöldinu fór ég svo á útgáfutónleikana með Shadow Parade og mikið rosalega voru þeir góðir!!! Var svona enn að ákveða mig hvort ég ætti að kíkja á djammið eftir tónleikana en um leið og þeir voru búnir og ég sá hvernig veðrið var þá var ég ekki lengi að ákveða að fara bara heim!!! Sem betur fer miðað við ófarasögur sumra sem héldu áfram á djamminu, haha!!! Jæja ætli það sé ekki best að halda áfram að lesa, váááá hvað ég get ekki beðið eftir að vera búin í prófum!!!!

MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR!!!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni