Ofboðslega eru þessar helgar alltaf allt of fljótar að líða!!! En það er víst alltaf þannig þegar það er gaman!!! Var voða dugleg að lesa um helgina en leyfði mér reyndar að kíkja aðeins út á laugardagskvöldið!!! Afrekaði það einnig að horfa á Borat myndina, reyndar bara online, en kannski er það bara best því að ég varð fyrir nokkrum vonbrigðum með myndina!!! Eins og þetta er sjúklega fyndinn karakter þá fannst mér þetta vera allt of mikið bull oft á tíðum!!! Vonandi verður bara næsta mynd hans með karakternum Bruno enn betri!!!

Annars er bara strax kominn þriðjudagur og það styttist óðum í næstu helgi, hahha!!! Já það er nú bara þannig í augnablikinu að maður lifir fyrir helgarnar því allur tíminn í miðri viku fer í vinnu og lærdóm!!! Er að fara á tjútt á föstudag og útgáfutónleika á laugardag svo að ég verð að vera súper dugleg í vikunni til að geta leyft mér þetta!!! Fyrsta próf eftir rúmar 3 vikur svo það er nú ekki mikill tími eftir í lestur!!! En mér til mikillar gleði þá er ég búin þann 18. des í prófum sem er nú aðeins fyrr heldur en í fyrra og er síðan í fríi frá skólanum alveg til 15. janúar, jíhaaa!!!

<< Home