Úfff mér líður akkúrat svona núna!!!! Var að koma úr fyrsta prófinu og er gjörsamlega að drepast úr þreytu!!! Hausinn á mér er ekki búinn að vera rétt skrúfaður á alla vikuna því ég var sannfærð um að þetta próf hefði átt að vera í gær en sem betur fer fattaði ég nú vitleysuna í mér í tæka tíð!!! Ó já svona er að vera í prófalestri, maður gjörsamlega missir vitið!!! Það hefði nú verið skrautlegt ef ég hefði mætt í próf í gær snaróð og bara lent í einhverju stærðfræðigreiningar prófi hjá verkfræðinni eða álíka, haha!!!

Anyways, erfiðasta prófið búið og það var svínslegt!!! Án gríns, mér finnst alltaf próf vera sanngjörn og ef manni gekk ekki nógu vel þá er það bara af því að maður var ekki búinn að lesa nóg, en ekki í þessu tilfelli!!! Held að ég þurfi aðeins að tuska kennarann til!!! Eyddi helmingi tímans í helvítis krossana sem voru krossar dauðans og átti þá eftir 3 ritgerðir og 4 langar skilgreiningar!!! Náði nú samt að klára sem betur fer, setti bara í túrbó gírinn og þá er nú flest hægt!!! Þannig að núna er ég að drepast úr þreytu með krampa í hendinni!!! Og næsta próf eftir rúman sólarhring!!! Já það er sko stuð að vera ég í augnablikinu, haha!!! Mússí mússss

<< Home