föstudagur, febrúar 16, 2007

Jeminn almáttugur ég er gjörsamlega búin að grenja úr hlátri yfir The Silvia Night Show!!! Hún er náttúrulega bara snillingur í markaðssetningu þessi kona!!! Það sem kom mér langmest á óvart var það að ég þekkti þó nokkra af bretunum sem hún er búin að plata til þess að taka þátt í þessu með sér!!! Já svona er þetta lítill heimur, hahaha!!! Annars er mest lítið að frétta nema bara það að ég er búin að vera með þessa ömurlegu flensu í vikunni og er rétt svo að jafna mig núna!!! Ekki seinna vænna þar sem að kveðjupartýið hennar Boggu er á morgun og þá skal sko taka almennilega á því og skvetta ærlega úr klaufunum!!! Já á morgun verður sko kíkt í bæinn,so be there or be square!!!

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni