Haldið þið að ég hafi ekki bara vaknað með þessu fallegu kvef augnsýkingu í morgun!!! Bjakk, eins gott að ég var búin að fá nýju gleraugun til þess að fela mig bakvið!!! Drullaði mér nú í vinnuna þrátt fyrir þessa yndislegu augnsýkingu og þó nokkurn hita og dröslaðist einhvern veginn í gegnum daginn!!! Dreif mig síðan bara til læknisins í hádeginu og komst að því að ég er með þessa yndislegu ennis- og kinnholubólgur og stafar augnsýkingin af því!!! En góðu fréttirnar eru þær að ég er komin á pensillín núna þannig að vonandi fer þessu bulli að ljúka og ég fer að vera eðlileg aftur!!! Ó já það er sko gaman að vera ég núna, híhí!!! Annars fékk ég þær yndislegu fréttir í gær að Hrefna sys og fjölskylda ætla að eyða mánuði heima í sumar, reyndar verða þau líklega úti á landi þar sem að Hrefna ætlar að vinna en mér er alveg sama, ég verð bara svo ánægð að hafa þau hérna heima og þá get ég heimsótt þau að vild!!!

<< Home