Enn önnur helgin búin og maður liggur við ennþá að jafna sig!!! Helgin var frábær í alla staði og gaman að síðasta helgin hennar Boggu var svona skemmtileg!!! Núna er Gremlings bara kominn í sólina og hitann í Köben og við fáum ekkert að sjá hana aftur fyrr en í júní!!! Á föstudaginn var innflutningspartý í vinnunni og eftir það kíktum við öll saman í bæinn!!! Á laugardaginn var síðan afmælið hans Danna hennar Emblu og vááá hvað þetta var skemmtilegt afmæli!!! Hef ekki skemmt mér svona vel heillengi enda var ég ekkert smá lengi úti!!! Ég tók aðeins meira af myndum um helgina heldur en ég hef gert undanfarið svo að ég ætla að reyna að henda þeim inn við fyrsta tækifæri!!! Nenni því ekki alveg núna þar sem ég er að fara að horfa á nýjasta uppáhaldsþáttinn minn, Heroes!!! Letin í hámarki enda heil vinnuvika framundan!!! Styttist í pabbi og Anna komi heim og þá fæ ég loksins nýju gleraugun mín, vei vei vei!!! Svo er ég bara farin að dunda mér við að skipuleggja sumarfríið og reyna að ákveða hversu lengi ég ætla að vera á hverjum stað, Barcelona, Köben og Svíþjóð, gaman gaman!!!

<< Home