Jæja ætli það sé ekki kominn tími á að henda inn nýrri færslu!!! Það er reyndar nú ekkert búið að vera svo mikið að frétta af mér undanfarið en hérna er svona það helsta!!! Skrifstofan og lagerinn í vinnunni eru flutt í nýtt hús rétt hjá því gamla og nýja skrifstofan er bara flott!!! Allt glænýtt enda í glænýju húsi og geðveikt útsýni beint á Nauthólsvík, Öskjuhlíðina og flugvöllinn!!! Nýkomin með nýjan rosalegan skrifborðsstól og bíð bara núna spennt eftir nýja borðinu sem kemur í næstu viku!!! Í dag vígði ég síðan nýju risastóru kaffistofuna / eldhúsið með því að elda indverskan kjúklingarétt sem var af sjálfsögðu sjúklega góður, nú verður ekki skyndibiti á föstudögum lengur heldur skiptumst við á að elda hinu ýmsu kræsingar, hehe!!!

Sem sagt síðustu vikur eru bara búnar að fara í þessa flutninga og undirbúning sem er búinn að fylgja og vinnan gjörsamlega búin að hrúgast upp enda ekki hægt að vinna mikið á meðan á þessum flutningum stóð!!! Skólinn er alltaf á fullu eins og vanalega og ég og Guðrún Dúfa erum loksins komnar á skrið með BA verkefnið okkar, phew þetta verður rosa vinna en sem betur fer erum við að skrifa um mjög skemmtilegt viðfangsefni!!! Djammið er alltaf á sínum stað og ég og Stína erum búnar að vera duglegar undanfarið og ekkert útlit á því að það stoppi á næstunni, enda er maður svo vinsæll að það er alltaf verið að bjóða manni e-ð!!! Í kvöld erum við að fara í kokteilboð og svo verður líklega kíkt e-ð eftir það en restina af helginni ætla ég að eyða í lærdóm, voffann minn, gleraugnakaup og svo af sjálfsögðu ætla ég að kíkja í Kolaportið á Boggu skvís sem er að fara að selja alla búslóðina sína ásamt mörgu stórfurðulegu áður en hún flytur til síns heittelskaða í Köben!!! Ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni, góða helgi múslurnar mínar!!! Mússí mússssss.....

<< Home