þriðjudagur, mars 06, 2007

Tammdaradammdaradammm!!!!

Liggur eitthvað svo ósköp vel á mér þessa dagana!!! Átti alveg yndislega helgi!!! Fór í 25 ára afmælið hjá Sam-bíóunum á föstudaginn og það var ekkert smá veglegt!! Eftir það kíktum við Stína svo á Vegamót og Óliver og enduðum svo kvöldið inni í VIP herberginu á Pravda sem var heldur spes, en ég kenni nú Stínu alfarið um það, híhí!!! Þetta kvöld var í rólegri kantinum en sjúklega fyndið eins og alltaf!!! Laugardaginn tók ég svo bara í búðaráp, heimsókn í Koló til Boggu og göngu með hann Týra minn!!! Sunnudagurinn var nokkuð svipaður nema það að það fór nokkur partur dagsins í lærdóm, maður verður víst að reyna að sinna þessu námi e-ð!!! Það er æðislegt í vinnunni í nýju skrifstofunni og á föstudaginn munum við síðan halda innflutningspartý og þá verður sko stuð!!! Þá ætti allt loksins að vera komið í stand og tilbúið til partý halda!!!














Í kvöld er saumó með skvísunum og það verður gaman að fá að heyra allt nýjasta slúðrið!!! Einnig verður þetta síðasti saumóinn sem hún Bogga mætir í allavega í bili þar sem að hún flytur út næstkomandi sunnudag og kallinn þegar mættur til landsins að ná í hana, hehe!!! Það verður nú e-ð skrýtið að hafa ekki litla enskumælandi Gremlingsinn með sér á tjúttinu en við verðum bara að taka skype tjútt á þetta í staðin og svo verð ég mætt í heimsókn áður en langt um líður!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni