miðvikudagur, apríl 25, 2007

Í dag höfum við viku til að halda áfram með BA ritgerðina og svo tekur við prófalestur!!! Sjitttttt segi ég nú bara!!! Inngangurinn er tilbúinn að mestu leyti og aðferðin líka!!! Núna erum við að vinna í niðurstöðunum og það gengur vel!!! Erum búnar með alla útreikninga og ég held að ritgerðin eigi eftir að enda í allavega 60 bls, úfff!!! Prófessorinn er mjög ánægður með innganginn fræðilega séð þannig að núna erum við bara að láta vini og ættingja lesa yfir svo við getum lagað málfarið!!! En skemmtilegast er að hann er alveg himinlifandi með niðurstöðurnar og rannsóknina í heild sinni sem er æðislegt, það getur allavega ekki komið sér illa, hehe!!! Ég er loksins, loksins farin að sjá fyrir endanum á þessu, sem betur fer þar sem ég hélt á tímabili að ég myndi ekki klára þetta fyrr en ég væri orðin áttræð, búsett á einhverju elliheimili, hahaha!!!














Lokaskil fyrir þá sem eru að fara að útskrifast eru 11. maí en þar sem að hvorug okkar er að fara að útskrifast í vor þá höfum við allan maí, vei vei vei!!! Ég ákvað að gera ritgerðina núna því að þá á ég bara eftir 2 lítil fög sem ég tek í haust og klára svo um jólin, jibbýýý!!! Var í raun skynsamlegasta leiðin því að ég er búin að vera í 100% vinnu með námi og veit ekki alveg hvernig ég hefði tæklað meira en fulla stundatöflu án þess að fá taugaáfall, hehe!!! Það verður allavega þvílíkur léttir að skila ritgerðinni og við stefnum að því að skila henni fyrir 15. maí!!! Eftir 15. maí verður síðan eitt heljarinnar partý sem mun standa yfir í allt sumar, híhí!! vei vei vei
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni