sunnudagur, apríl 08, 2007

GLEÐILEGA PÁSKA KRÚTTIN MÍN!!!














Úffffffff...gjörsamlega búin að læra og éta yfir mig í þessu páskafríi!!! Komið að lokasprettinum í náminu og þetta er nú heldur betur tæpt!!! Þessi blessaða BA ritgerð tekur nú heldur betur tíma og er allt fríið búið að fara í hana og samt er einhvern vegin alltaf eins og það sé endalaust eftir!!! Oh well, bara rúmur mánuður í að þetta verði búið!!!

Heyrði aðeins í Boggu skvís áðan og hún er nú heldur betur orðin dönsk á stuttum tíma!!! Skvísan er komin með vinnu við Hjemmehjælp og byrjar fljótlega þar og þangað til er hún bara á fullu að reyna að ná tökum á dönskunni!!! Það er farið að sumra hjá þeim og alltaf nóg að gera enda er það víst bara þannig í útlöndunum!!! Hlakka ekkert smá til að sjá þau í júní og svo styttist í að ég flytji bara þangað sjálf, vei vei vei!!! Þangað til ætla ég bara að einbeita mér að því að ljúka náminu og vinna eins og ég get og svo verður það bara hasta la vista klaki, hello útlönd, hahahah!!! x
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni