föstudagur, apríl 13, 2007

Jiii hvað er málið með þetta ógeðis veður!!! Er ekki alveg að ná þessu, hélt að það væri komið vor og alveg að fara að koma sumar!!! Alveg glatað!!! Svo verður pottþétt æðislegt veður á meðan ég er í prófum, þetta er alltaf eins!!! Stundum held ég að ég hefði átt að vera fædd einhvers staðar í mun heitara loftslagi þar sem að ég þoli engan vegin þessa veðráttu hérna og af einhverjum óskiljanlegum ástæðum er mér ALLTAF kalt!!! Oh well!!!














Annars er barasta ekki neitt að frétta af mér þessa dagana, allur tími utan vinnu fer bara í lærdóm og tóm leiðindi, haha, ég veit ég er alltaf að kvarta en ég er bara orðin hundleið á því að eiga ekkert líf!!! Er reyndar bara að vinna á mánudaginn og svo er ég komin í frí þar til eftir próf svo að loksins get ég farið að einbeita mér að lærdómnum 100% !!! Helgin fer sem sagt bara að mestu í lærdóm!! Bibba skvís er reyndar að halda upp á afmælið sitt á morgun og ég ætla mér nú að kíkja þangað en sem betur fer er það bara milli 4 og 8 svo það verður ekkert erfitt að fara heim og ég un ekki þurfa að horfa á alla hina í rífandi stuði, hehe!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni