miðvikudagur, apríl 04, 2007

Vúhúúúú.....mikið roooosalega var gaman í 10. J.Þ. bekkjarpartíinu á föstudag!!! Þetta var eitt það allra rosalegasta partý sem ég hef farið í lengi lengi lengi, hahaha!!! Það var ekkert smá góð mæting og allir í góðum gír!!! Sváfnir bauð okkur öllum heim til sín í rosa flotta penthouse íbúð á Laugarveginum og var gestgjafinn sjálfur dressaður í peysu og úlpu frá því í gaggó, hahaah!!!














Pártíið byrjaði nú frekar rólega og allir bara að fá fréttir af hvort öðru og þess háttar en áður en um langt leið var gestgjafinn mættur með skotbolta og glænýjar reglur sem fylgdu!!! Í hvert skipti sem boltinn var ekki gripinn þurfti að renna niður einu ljúffengu ópal staupi og má segja að það hafi komið liðinu af stað...!!!














Fljótlega voru allir komnir í gírinn og sumir aðeins meira en aðrir!!! Ég hef bara sjaldan séð annað eins, hahah!!! Sváfnir tók lagið fyrir okkur og svo var dansað og skemmt sér fram á nótt!!!














Kvöldið var þó ekki alveg dramalaust þar sem að ég, Óttar og einhverjir fleiri lentum í því að fá kinnhest frá ónefndum aðila og aðrir lentu í svipuðum óskemmtilegum aðstæðum svo sem að vera dúndrað niður með skotbolta, læst inni á klósetti og kallað öllum hinu illu nöfnum af hinum sama aðila, haha, já það er hægt að hlæja að þessu í dag!!! Um tvö leytið var svo haldið í bæinn og dansað og skemmt sér langt fram á kvöld!!! Strákarnir komu fram við stelpurnar eins og drottningar og sáu til þess að kampavínið flæddi allt kvöldið á Kaffibarnum!!! Way to go guys!!! Myndir má finna á myndasíðunni minni en það er linkur á hana hér til hægri!!!

Í kvöld lauk ég síðan við síðustu ritgerðina mína og þá fer nú að styttast í lokin á þessu!!! Á eftir eitt rannsóknarverkefni, tvö próf og að klára BA ritgerðina mína!!! Vááá hvað ég get ekki beðið eftir að þetta verði búið!!! Páskafríið fer sem sagt að mestu í lærdóm en á morgun ætla ég samt að fara í partý sem okkur var boðið í í gegnum vinnuna á Broadway og hver veit nema maður endi á Fedde Le Grande seinna um kvöldið þar sem hann er nú að spila þar!!! Allavega verður kíkt e-ð í bæinn en þetta verður nú allt saman í rólegri kantinum því að á fimmtudag er verið að fara að ferma Dóru og ég verð víst að mæta þangað hress og kát, vúhúúúú!!!!

Jæja hef þetta ekki lengra að sinni, ciao!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni