þriðjudagur, júní 19, 2007

Ég fékk 8,5 fyrir BA ritgerðina mína, jíhaaaa!!!!

Ó já mín er sko alveg í skýjunum enda fór engin smá vinna í þessa rannsókn og ritgerðina sjálfa!!! Var bara að fá einkunnina og er vægast sagt að springa úr gleði núna!!!

Annars er fullt búið að vera að gerast undanfarið!!! Ferðin til Noregs gekk ótrúlega vel og við erum ekkert smá ánægð með árángurinn!!! Reyndar var þetta ekkert smá mikil vinna og fundir allan daginn!!! En fyrsta kvöldið vorum við sóttar á snekkju, siglt með okkur í klukkutíma um eyjarnar og á meðan sötruðum við kampavín og borðuðum jarðaber!!! Já þannig á maður að lifa, hehe!!! Þar á eftir fórum við á frægasta sjávarrétta veitingastaðinn í bænum og fengum æðislegan mat!!! Hin kvöldin vorum alveg jafn indæl en maður var nú samt alveg ógurlega þreyttur!!!













Þegar við lentum á fimmtudaginn í Keflavík hittum við síðan Boggu skvís á flugvellinum en skvísan var komin heim að halda upp á útskriftina sína!!! Föstudag kom svo Snædís til landsins og við skelltum okkur með hana á alvöru íslenskt djamm sem var nú heldur betur þrusu stuð!!! Á laugardag var útskriftin hennar Boggu og hún var alveg frábær!!! Eftir hana var kíkt aðeins í bæinn en ég get nú ekki sagt að það hafi verið jafn mikið stuð og kvöldið áður!!! 17. júní fór í kaffihúsarölt og svo rétt kíktum við á Sprengjuhöllina spila áður en við héldum heim á leið!!!

Og svo er bara komið að því að fara út aftur ekki á morgun heldur hinn!!! Úfffff, ég er liggur við enn dauðþreytt eftir hina ferðina og þessa svaðalegu helgi og þá er bara komið að þessu aftur!!! En í þetta sinn er ég að fara í alvöru frí og afslöppun þannig að ég get nú ekki kvartað!!! Ég lendi í Köben á fimmtudagskvöld og strax á föstudag ætla ég að skella mér yfir til Malmö á Midsommar Aften. Hrefna og fjölskylda verða stödd hjá Dýllu frænku og mér finnst alveg tilvalið að fara að heilsa upp á þau öll!!! Á mánudag fljúgum við svo til Barcelona í viku og ég get ekki beðið eftir því!!! Ætla bara að liggja á ströndinni með kokteil í hönd og njóta lífsins í botn!!! Svo er það bara Köben aftur í 10 daga og að lokum kem ég aftur á skerið 10. júlí!!! Búhúhú...... en svo flyt ég bara til Köben, híhí!!!















Jæja ég er þá bara farin í sumarfrí en þið sem hafið áhuga getið haldið áfram að fylgjast með því að ég mun taka elskulega maccann minn með mér í ferðina og reyna að uppfæra eins oft og ég get og setja inn allar myndirnar sem ég ætla að taka!!! Já pásunni í myndatöku er lokið, jíhaaa!!!

Mússí mússss
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni