laugardagur, júní 09, 2007

Jiiii hvað það er langt síðan ég hef bloggað!!! Ég er bara búin að vera svo hrikalega bissý undanfarið að ég hef ekki haft tíma né orku til þess að blogga!!! Það er búið að vera alveg crazy að gera í vinnunni og ég er barasta búin að vera svooo þreytt þegar ég kem heim til mín á kvöldin að ég fer beint í háttinn!!! En það styttist í mitt kærkomna frí sem byrjar eftir minna en 2 vikur!!! Oh hvað það verður æðislegt!!! Hitabylgja í Köben og svona, NICE!!!! Svo verður náttúrulega bara æði í Barcelona!!!!

Anyways, núna á mánudaginn erum ég og Stína að fara til Noregs, nánar tiltekið Osló og Fredrikstad í vinnuferð og verðum fram á fimmtudag!!! Það verður svaka gaman að koma þangað því að ég hef ekki komið til Noregs áður og það sakar sko ekki að það er hitabylgja þar núna!!! Verður reyndar mikið um fundi og þess háttar en maður nær væntanlega að sleikja sólina smá vegis seinnipartinn!!!

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni