Úff hvað ég var bara búin að gleyma hvað það er ömurlegt að vera þunnur!!!
Skellti mér óvænt út á laugardagskvöldið þar sem að Jói var mættur á klakann með Josefine kærustunni sinni!!! Ég og Edda hittumst fyrst saman í drykk á 101 og B5 sem var voða nice!!! Síðan var haldið á Óliver að hitta restina og vá hvað það er alltaf allt alveg eins þarna inni!!! Ég var ekki búin að fara þangað heillengi en það var eins og ég hefði barasta verið þarna í gær, sama fólkið að gera sömu hlutina!!! Um fjögurleytið var síðan aðeins komið við á nýja Pizza Pronto til þess að mana sig upp í átök leigubílaraðarinnar!!!

Ekki veit ég hvernig ég ætla að tækla tvöfalt djamm næstu helgi, er hætt að nenna þessu!!! En ég mun allavega pottþétt tjútta á griffludeginum og svo sé ég bara til hversu vel tónleikarnir ná að hrista upp í mér á föstudeginum, hehe!! Jæja ætla að halda áfram að vorkenna sjálfri mér, hehhe!!!

<< Home