mánudagur, október 22, 2007

Ég get svoleiðis eið svarið það!!!!

Heppnin er alveg að fara með mig þessa dagana....not!!! Ekki nóg með að ég sé búin að vera með þessa flensu í nánast tvær vikur og í ömurlegu prófastússi á meðan heldur er bíllinn minn búinn að gefa upp öndina!!! Ó já það er víst svo mikið að þessu greyi að það borgar sig ekki að gera við hann!!! Gat ekki gerst á verri tíma, ekki auðvelt að vera bíllaus þegar maður þarf stanslaust að vera að flakka á milli skóla og vinnu!!! En þá er bara best að taka "Pollýönnu" á þetta og hugsa að núna bíði mín einhver æðislegur bíll þarna úti, hehe!!! Verð allavega að redda þessu a.s.a.p. þar sem að ég kann sko ekki að vera bíllaus!!!














En svona burtséð frá þessum hrakförum þá er ég bara búin að vera að berjast við að ná þessari flensu úr mér!!! Helgin fór í róleg- og huggulegheit enda þurfti ég á því að halda eftir frekar súra viku!!! Svo fer að koma að næstu prófatörn og flutningum hjá mömmu og þeim þannig að það er víst nóg að gera á næstunni!!! En "fingers crossed" að ég finni bíl sem fyrst því annars á ég eftir að verða geðveik, vil fara að komast í ræktina eftir veikindin!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni