föstudagur, október 19, 2007

Laugardaginn 13. október fór fram hinn árlegi Grifflufögnuður með miklum glæsibrag!!! Eins og vanalega voru aðeins gefnar fáeinar vísbendingar um hvað væri í vændum þennan merka dag og það eina sem við vissum var að það væri Sex in the City þema!!!

Mæting var heim til Hörpu klukkan 14.00 þar sem að við fengum fordrykk og frískandi meðlæti!!! Dagurinn var formlega settur í gang með því að skála og öllum grifflum afhentir "goody bags" sem að innihéldu meðal annars: naglalakk, gloss, white stripes, alka seltzer, prins póló, naglaþjöl, augnblýant og margt margt fleira sniðugt!!!














Næst var dagskráin kynnt!!! Skipt var niður í fjögur lið og fengum við leiðbeiningar um "workout" dagsins sem fólst meðal annars í því að taka ljósmyndir af hverju liði í anda Sex in the City!!! Myndirnar áttu að gefa til kynna: Sex in the City, frama, tísku, Mr. Big, vinkonur og "strut"!!! Að auki átti hvert lið að taka upp atriði að eigin vali úr þáttunum og urðu að hafa að minnsta kosti einn ókunnan leikara, hehe!!! Næst var rokið niður í bæ í "workoutið"!!! AÐ því loknu söfnuðumst við saman á Lækjartorgi og tókum leið 1 í strætó samkvæmt leiðbeiningum!!! Í Hamraborg var hoppað út úr strætó og þaðan vorum við teknar beinustu leið í Mecca Spa í smá dekur og huggulegheit!!!














Þar á eftir lá leiðin heim til Rósu þar sem búið var að skreyta húsið hátt og lágt í anda þemans!!! Við gerðum okkur allar sætar og fínar saman með Cosmo í hönd og svo kom ung kona sem sá til þess að við fengum allar fótabað og handmaska, þvílíkur dekurdagur, hehe!!!














Eftir að hafa látið dekra við okkur og skálað í nokkra Cosmo yfir Sex in the City þáttum og slúðurblöðum tók við dýrindismáltíð þar sem boðið var upp á meiriháttar lambalæri, meðlæti og að sjálfsögðu rauðvín og hvítvín!!!














Að borðhaldi loknu tók svo við sýning á afrakstri dagsins, þ.e. myndum og myndböndum þar sem að liðin kynntu atriðin sín með miklum tilþrifum!!! Verðlaunaafhending fór fram að því loknu og nýja nefndin var kynnt!!! Eftir æðislega dagskrá var svo kominn tími til að spæna upp dansgólfið í killer skónum!!!














Seint og síðar meir var kíkt í bæinn á helstu staðina!!! Ég skemmti mér alveg ótrúlega vel þrátt fyrir veikindi og hefði eflaust endast lengur í bænum hefði ég verið fullfrísk, það var bara of freistandi að láta sækja sig snemma og komast undir sæng!!! Ég vil þakka ykkur öllum sem einni fyrir meiriháttar dag og kvöld og get ekki beðið eftir jólaglögginu (vonandi verð ég ekki farin út þegar það verður haldið)!!!

Myndir eru komnar á myndasíðuna mína!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni