Jæja þá er komið að því að segja frá útskriftinni!!!
Ég útskrifaðist sem sagt 23. febrúar síðastliðinn í Háskólabíó!!! Athöfnin sjálf var nú ekki næstum því jafn löng né leiðinleg og ég hafði gert mér í hugarlund og mér tókst að taka á móti skírteininu án þess að detta eða misstíga mig á sviðinu, hehe!!! Eftir að athöfninni lauk dreif ég mig síðan heim til pabba þar sem ég var með smá veislu í tilefni dagsins!!! Upphaflega hafði ég nú ekki ætlað að halda neina veislu heldur slá afmælinu og útskriftinni bara saman í eitt risa stórt partý, en svo ákvað ég bara að það væri nú skemmtilegra að hafa tvö partý!!! Til pabba komu svo nánustu vinir og fjölskylda í kokteil og fínerí milli 17-19!!! Þar var algjört æði og ég skemmti mér konunglega!!!

Eftir það fórum svo við sem vorum í stuði (ég, Stína, Edda, Guðrún Dúfa og Hólmar) heim til mín að horfa á Eurovision forvalskeppnina!!! Þar var spilað á airguitar allt kvöldið og rokkað þangað til að tími var kominn til að fara í bæinn!!! Við kíktum inn á Nasa en þar var bara eins og að vera í síldartunnu og omg hvað það var steikt lið þarna inni!!! Eftir u.þ.b. 15 mínútur í geðveikinni stungum við af á apótekið og eyddum restinni af kvöldinu þar!!! Um 3 leytið drifum við okkur svo heim enda var ég búin að vera á fótum frá því 8 um morguninn!!! Það tók þó heldur langan tíma að komast heim, ég sem hafði ætlað að vera svo sniðug að fara heim svona snemma til að sleppa við leigubílaröðina endaði á því að bíða í klukkutíma í þessari blessuðu röð!!!
Ég vil koma á framfæri innilegum þökkum til allra!!! Ég fékk svo mikið af fallegum gjöfum og átti svo yndislegan dag!!! Takk fyrir mig!!! xxx
Myndir komnar á myndasíðuna mína!!! Lykilorðið er nafn systur minnar!!!

<< Home