miðvikudagur, apríl 09, 2008

Vá hvað tíminn flýgur!!! Eftir 9 daga verð ég í London, jibbýýýý!!!

Ég er orðin ekkert smá spennt enda orðið frekar langt síðan ég var þar síðast!! Ferðin er alveg plönuð frá a-ö og það lítur út fyrir að þetta verði alveg frábær ferð!!! Ég ákvað að plana hana eins mikið og ég gæti til þess að ég gæti hitt sem flesta og einnig til að ég hefði nánast engann tíma í búðunum, gengið er alveg glatað þannig að það er eins gott að ég fari ekki að missa mig í búðunum, hehe!!! Föstudagurinn fer reyndar í fundi og þess háttar en svo hef ég bara frjálsan tíma og get djammað að vild með öllum vinum mínum sem ég sakna svo mikið!!! Það verður bara æði að hitta strákana mína aftur!!!















Svo kem ég bara heim í rúmar tvær vikur og þá er komið að Köben beibí!!! Er reyndar bara mest lítið búin að plana þá ferð en ég bara veit að það verður ekkert leiðinlegt að halda upp á afmælið sitt í heila 5 daga með góðum vinum :-)

Já ég lifi þessa dagana fyrir utanlandsferðirnar mínar enda er ekkert stórkostlega skemmtilegt búið að vera að gerast undanfarið!!!
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni