fimmtudagur, september 18, 2008

Váááá hvað hjólin geta snúist hratt þegar þau loksins byrja að snúast!!!

Búin að vera að hringja og spyrjast fyrir um vinnu úti undanfarið og rakst inn á vefsíðu um daginn þar sem var verið að auglýsa laus störf. Ég sótti samviskusamlega um þau störf sem að mér leist vel á og haldið þið ekki að ég sé barasta að fara út í atvinnuviðtal í þarnæstu viku, og hjá sko engu slor fyrirtæki heldur!!!

Ég ætla nú ekki að skrifa nafnið á fyrirtækinu eins og það er skrifað hérna á bloggið, svona upp á að það poppi nú ekki upp á google, hehe, en stafirnir í fyrirtækinu eru bornir fram sem emm æ err ess ká, setjið þetta saman og þá eigið þið að fatta hvaða fyrirtæki þetta er ;)

Þetta er sem sagt eitt af stærstu siglinga og olíufyrirtækjum í heimi og því ekkert smá flott ef að ég fæ vinnu þarna!!! fingers crossed!!!

Svo er ég búin að kaupa mér flugmiða út og búin að festa 24. okt sem "the moving day"!!!!

Já það er sko bara allt að gerast!!!

Wish me luck!!!

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni