föstudagur, október 17, 2008

OMG ég trúi því varla að eftir viku verði ég nýlent í Köben!!!

Ég er gjörsamlega að farast út spenningi og eftirvæntingu!!! Get ekki beðið eftir að sjá íbúðina og flytja inn í hana í þar næstu viku!!!

Anyways þá flýg ég út næsta föstudag eldsnemma um morgunin og Hrefna, Grímur og Ragnhildur koma að sækja mig út á völl!!! Síðan ætlum við bara að dunda okkur saman um daginn og heimsækja Boggu og Emil Orra og kíkja jafnvel á kaffihús!!! Um kvöldið fljúga Hrefna og co. síðan heim til Íslands í viku þannig að ég skutla þeim bara út á flugvöll og kem síðan bílnum fyrir á öruggum stað þar til þau koma tilbaka!!! Síðan taka bara við þrif á nýju íbúðinni þá helgina og rosa þrítugsafmæli á laugardagskveldinu :D

Strax á mánudeginum verð ég síðan mætt í mínu fínasta pússi á atvinnumiðlanirnar þarna úti og ætla að redda mér vinnu eins fljótt og ég mögulega get!!!

Ég á eftir að kveðja eiginlega alla áður en ég fer út og er ekkert lengur viss um að ég komi heim um jólin og ætla ekkert út á djammið um helgina frekar en síðustu helgar svo að ef einhver ykkar eigið leið hjá Kolaportinu á laugardaginn þá megið þið endilega droppa við og gefa mér kveðjuknús!! Ó já ég ætla að vera með bás þar á laugardaginn og losa mig við ýmsar gersemar sem ég kom ekki með í gáminn og Hildur vinkona verður líka þarna að selja ýmislegan fjársjóð!!!

xxx

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni