mánudagur, nóvember 17, 2008

Jæja þá er best að henda inn smá nýju bloggi áður en að allt verður kolvitlaust ;-)

Héðan er bara allt æðislega gott að frétta og ég er loksins að verða búin að koma mér ágætlega fyrir í íbúðinni!!! Á bara eftir að klára að þrífa gólfin almennilega og þá skelli ég inn myndum af höllinni!!! En vá þvílíkan og annan eins skít hef ég sjaldan séð eins og beið mín hérna þegar ég flutti inn, það er greinilegt að skítastandardinn er annar hérna en heima!!! Anyways þá er heilmargt búið að gerast síðan ég kom út!!

Ég er reyndar ekki ennþá komin með vinnu en er á fullu að vinna í því og búin að vera í viðtölum undanfarið, þetta er bara mun lengra ferli heldur en heima og maður má alveg búast við því að þurfa að fara í 2-3 viðtöl áður en manni er boðin vinnan, svo að ég segi bara fingers crossed!!!!

En það er sko greinilegt að maður er kominn í annað land því að ég er búin að skella mér á tvenna tónleika síðan ég kom hingað!!! Þar þar síðustu helgi fórum við Bogga að sjá Keane spila í Valby hallen eftir að Ben var búinn að setja okkur á gestalistann og skemmtum við okkur alveg konunglega!!!



























Þar síðustu helgi fórum við síðan í risa einkapartý hjá Carlsberg í Tívolíinu í tilefni af útkomu jólabjórsins á föstudeginum og svo á laugardeginum setti Mani okkur á gestalistann á Oasis tónleikum og OMG hvað það var geðveikt!!! Sátum bara á VIP svölunum í besta yfirlæti og nutum tónleikanna í botn áður en við skelltum okkur út á tjúttið!!!








































Já hérna er gott að vera og nóg um að vera á daginn í atvinnuleit og gönguferðum með Boggu og Emil Orra litla sem er algjört bjútý!!! Ég sakna nú allra heima strax en kemst vonandi heim um jólin til að knúsa ykkur!! Ætla ekki að hafa þennan póst lengri að sinni en set inn myndir af íbúðinni sem fyrst!!!

xxx
eXTReMe Tracker Á sí­ðunni