Trallalallala!!!! Ég er loksins komin með vinnu!!! Vúhúú!!!
Og ég fékk vinnuna sem ég vildi!!! Tók reyndar heillangan tíma en ég fékk vinnu hjá stærsta og virtasta fyrirtækinu hérna :D ætla reyndar ekki að segja nafnið hérna bara svona upp á að það sé ekki hægt að googla mig en þetta er stóra skipafyrirtækið sem ég fór í viðtal hjá í september. Ég fékk ekki vinnuna þá en ég er komin með fótinn inn fyrir hurðina núna....er að vinna í afleysingum næstu 6 vikurnar og svo er ég að vonast til að fá fastráðningu eftir það...fingers crossed!!! Þetta er eitt erfiðasta fyrirtækið að fá vinnu hjá hérna svo ég má prísa mig nokkuð sæla!!!
Anyways þá byrjaði ég að vinna í gær og vá hvað þetta er ólíkt öllum öðrum vinnustöðum sem ég hef áður unnið á!!! Mun meira professional og stífara umhverfi þannig að nú er bara að duga eða drepast!!! Nóg af nýjum hlutum að læra og óteljandi tækifæri svo að ég er bara nokkuð bjartsýn á framtíðina!!!
Ég er að vinna í höfuðstöðvunum sem eru rosa flottar (sjá mynd að neðan) og það eru um 1600 manns bara í byggingunni minni sem er ekkert smáræði....minnir mig bara á Harrods!!! Þarna er risa mötuneyti og við fáum frían mat á morgnana og í hádeginu, fatahreinsun, hraðbankar og örugglega margt fleira sem ég á enn eftir að uppgötva :D
Annað í fréttum er bara að það er orðið ansi jólalegt og fallegt hérna og ennþá nokkuð hlýtt svo ég get ekki mikið kvartað!!! Búin að vera að dunda mér við að hjóla svolítið um borgina og skoða hana en tókst að fljúga á hausinn af hjólinu mínu um daginn og var bara heppinn að sleppa með nokkra risa marbletti, haha!!! Það hlaut að koma að þessu!!!
Svo er ég búin að ákveða að koma ekki heim um jólin þar sem að við erum að keppast við að loka árinu í vinnunni og ég get lítið verið frá um jólin!!! Ég ætla því að skella mér til systu í Svíþjóð á Þorláksmessu eða kvöldið áður og vera til 28. des og eyða síðan áramótunum bara í rólegheitum hérna í Köben!!!
Jæja ég bið að heilsa í bili, lofa að setja inn myndir af íbúðinni í næsta pósti!!!
xxx

<< Home