mánudagur, janúar 12, 2009

Gleðilegt nýtt ár elskurnar mínar!!!

Vona að þið séuð búin að hafa það hrikalega gott yfir hátíðarnar :D

Ég er búin að hafa það ósköp notalegt enda var þetta nú bara stutt og laggott frí!!! Skellti mér til systu í Sverige og átti þar notalegar stundir með fjölskyldunni!!! Eina skiptið sem við systurnar kíktum síðan út kviknaði í staðnum sem við vorum á þannig að áttum fótum okkar fjör að launa!!! Roooosalegt, haha!!!

Áramótin voru síðan í rólegari kantinum heima hjá foreldrum Sigrúnar og Snædísar þar sem að borið var fram dýrindis hreindýrakjöt ásamt ýmsu öðru góðgæti!!!

Árið hefur síðan bara byrjað vel hjá mér en það er búið að vera bilað að gera í vinnunni enda var verið að loka árinu 2008. Er búin að bóka og bóka og bóka og er farin að dreyma vinnuna á nóttunni, haha!!! En núna fer að róast og von er á Ben, Dassie, Matt og Ale hingað um helgina þannig að það ætti að vera þrusuhelgi framundan!!!

Góða helgi yndin mín!!

xxx




eXTReMe Tracker Á sí­ðunni