föstudagur, mars 20, 2009

Jæja það var nú meira stuðið hjá mér í vinnunni á miðvikudaginn!!

Um hádegisbil byrjuðu brunabjöllurnar í byggingunni að hringja og á símanum voru endurtekin þau skilaboð að húsið væri "under threat" !!! Allir byrjuðu að hlaupa út eins og húsið væri alelda og þegar var komið fram á ganginn á okkar hæð (4) þá fékk maður strax ofsa sviða í augu, nef og háls og greinilegt var að það var eitthvað mjög framandi efni þarna á ferðinni!!! Fólk fór að paneka ennþá meira og halda að það væri einhver árás í gangi og þvílíka kaosið sem myndaðist þarna á stigaganginum!!! Við komumst þó loksins út öll heil á húfi eða um 1200 manns!!! Í ljós kom að um efnaleka var að ræða en ammoníum hafði lekið í miklu magni í loftræstikerfið og því var þetta út um alla bygginguna og það tók slökkviliðið fleiri klukkutíma að ræsta húsið!!! 7 manns voru fluttir á sjúkrahús með ammoníum eitrun en þetta fór þó betur en á horfðist og ég var nú bara nokkuð sátt að fá frí svona einn eftirmiðdag, haha!!! Já það er stuð í Köben!!! Skelli með smá myndum af fjörinu!!!






eXTReMe Tracker Á sí­ðunni