miðvikudagur, júní 10, 2009

Hæ hó, já ég er enn á lífi þótt ótrúlegt megi virðast!!!

Hef barasta ekki nennt að sinna litla blogginu mínu þar sem að allir virðast vera komnir yfir á facebook þessa dagana!!!

Anyhow þá er búið að vera mikið um að vera síðustu vikurnar, endalausar heimsóknir og þess háttar!!! Mamma, Hrefna, Dýrleif og Peta komi í heimsókn um miðjan maí og það var alveg hreint yndisleg helgi sem við áttum saman mæðgurnar!!! Helgina eftir að komu síðan allar skvísurnar í saumó í heimsókn og jedúddamía hvað það var gaman hjá okkur stöllunum!!! Þeystumst allar um á hjólum og skoðuðum helstu ölhús borgarinnar ásamt því að kíkja og flottustu veitingahúsin og heitustu búðirnar!!!

Hérna er síðan bara sumarið að komast í gang, hægt og rólega og nóg um að vera á næstunni. Á föstudagskvöld erum við á leiðinni í Tívolí á tónleika með James Morrison og svo eitthvað tjútt eftir á og helgina þar á eftir stefni ég á Midsommar í Svíþjóð!!!

Vona að þið hafið það gott, skrifa meira síðar!!!
xxx

eXTReMe Tracker Á sí­ðunni